
|
Loftmynd af Sandskeiði við bláfjallaafleggjarann. Myndin er fengin af vef
Flugnemans.
|
Víða erlendis má finna s.k. stökksvæði (e. dropzone) sem flest eru rekin eingöngu út á fallhlífastökk
og eru þau því gjarnan staðsett við smærri flugvelli þar sem flugumferð er ekki ýkja mikil.
Mörg þeirra reka flutningavélar sem algengt er að taki um 25 manns um borð og bjóða jafnframt upp á
aðstöðu og andrúmsloft sem myndar lítil samfélög eða kjarna sem fallhlífastökkvar gera gjarnan að öðru
heimili sínu.
Á Íslandi höfum við því miður ekki slík svæði tileinkuð fallhlífastökkinu eingöngu en við
söfnumst saman á hinum ýmsu flugvöllum víðsvegar um landið þegar vel viðrar. Þeirra á meðal má
nefna Sandskeið sem okkar helsta stökksvæði í nágrenni Reykjavíkur og svo Hellu og Egilsstaði
en þar hefur gjarnan verið haldin ein vegleg stökk-samkoma (e. boogie) yfir sumarið. Einnig höfum
við stokkið annað slagið á Selfossi, í Mosfellssveit, á Flúðum, Melgerðismelum og á Akureyri svo dæmi
séu tekin.
Kunnum við aðstandendum þessa svæða hinar bestu þakkir fyrir afnotin af þeirri auðlind sem
flugvellir eru í okkar augum!

|
Þórjón P. Pétursson stekkur með farþega yfir Helluflugvelli 21. júlí 2001 kl. 18:20.
© Pétur Steinn
|
Sjaldgæft er að stokkið sé yfir Reykjavík nema sérstök tilefni séu til og er það þá gjarnan í
formi sýningarstökka sem flestir kannast við s.s. á 17. júní. Við einstaka tækifæri eru þó
skipulögð stökk í eða við reykjavík og þá helst á vorin þegar flugbrautir smærri flugvalla á
landsbyggðinni eru enn of viðkvæmar svo hægt sé að lenda þar flugvélum. Í byrjun júlí árið 2002
mátti þó oft sjá fallhlífastökkvara yfir reykjavíkurflugvelli í nokkra daga. Þá var stokkið úr
flutningavél af gerðinni Antonov AN-28 sem fengin var til landsins í tengslum við stökk-samkomuna
á Egilsstöðum í júní sama ár.
Nokkur stökksvæði í Bandaríkjunum:
Skydive Arizona Eloy, Arizona, USA...
Skydive City (Z-Hills) Zephyrhills, Flórída, USA
Skydive Deland Deland, Flórída, USA...
Skydive Key West Sugarloaf, Flórída, USA...
Skydive Miami Miami, Flórída, USA...
Perris Valley Skydiving Perris, Kalifornía, USA...
Skydive Sebastian Sebastian, Flórída, USA...
Skydive Space Center Titusville, Flórída, USA...
Pétur Steinn Pétursson - Desember 2002.