Fallhlífastökk hófst árið 1965 á Íslandi er þáverandi flugmálstjóri Agnar Kofoed Hansen stökk fyrstur
manna fallhlífastökk hér á landi. Var það á kringlóttri fallhlíf upp á gamla mátann.
Næstan ber að nefna Sigurð Bjarklind sem mestan heiður á skilinn af öllum stökkvurum á Íslandi
fyrir framlag hans til fallhlífastökks og þróunar þess hér á landi. Sigurður bar þunga fallhlífastökkskennslu
á Íslandi í hartnær 20 ár!

|
Frá æfingu Flugbjörgunarsveitarinnar á Helluflugvelli þann 7. september 2002 kl. 12:28.
© Pétur Steinn
|
Árið 1983 komu til landsins fyrir tilstuðlan Flugbjörgunarsveitarinnar í Reykjavík
7 erlendir kennarar og var það í fyrsta skipti sem notaðar voru ferkantaðar aðalfallhlífar fyrir nemendur. 1984 komu 4 af
þessum kennurum einnig á klakann og þá í boði Fallhlífaklúbbs Reykjavíkur. Má segja að upp frá því hafi
fallhlífastökksmenning á Íslandi fyrst farið á flug. Íslendingar fóru að sækja sér æ meiri reynslu erlendis,
bæði í sportstökki sem og að sækja ýmis kennaranámskeið.
Fallhlífastökkskóli Íslands var stofnsettur árið 1985 og komu þá til landsins
fyrstu ferköntuðu kennslufallhlífarnar í eigu Íslendinga. Þótti sumum þetta hið mesta bruðl þar sem kringlóttar
fallhlífar væru fullgóðar fyrir "þessa nemendur" en þróuninni varð ekki snúið til baka og í dag er
eingöngu notast við ferkanntaðar fallhlífar í kennslu. Einungis Flugbjörgunarsveitin notast við
hringlaga fallhlífar, fyrir því eru góðar og gildar tæknilegar ástæður sem ekki verður farið út í hér.

|
|
Íslenskir fallhlífastökkvarar ganga um borð í Twin Otter Flugfélags Íslands (TF-JMC) þann
8. september 2001 kl. 15:38. © Pétur Steinn
Á myndinni má sjá (f.v.):
Villa, Bergstein, Laufey, Ísleif, Matta, Kjartan, Arnór Barkar, Rúnar, Davíð og svo Jóa um borð
í vélinni. Samkomuhaldarinn Siggi Bald fylgist með.
|
Allt í allt hafa rúmlega 1.400 Íslendingar prófað fallhlífastökk frá upphafi og þar af hátt í 1.200 lært hjá FSSÍ.
Á Íslandi eru í dag starfræktir 2 fallhlífaklúbbar, Fallhlífaklúbbur Reykjavíkur (FKR)
og Fallhlífaklúbbur Íslands (FKÍ). Fallhlífaklúbbur Akureyrar og Fallhlífaklúbbur Austurlands sem staðsettur er á
Egilsstöðum hafa sofið friðsælum þyrnirósarsvefni undanfarin ár.
Um fallhlífastökk gilda að sjálfsögðu reglur eins og með alla aðra flugumferð og kemur það í hlut
Fallhlífarsambands Íslands (FALLÍS) að hafa yfirumsjón með þeim málum. Hlutverk þess er að sjá til
þess að viðhlítandi reglur séu til, þeim sé framfylgt og að stuðla að þróun í fallhlífastökki. FALLÍS
má segja að sé einskonar "ríkisstjórn" fallhlífastökkvara eða regnhlífasamtök fallhlífaklúbba og
meðlima þeirra, tengiliður fallhlífastökkvara við Flugmálstjórn og aðra
aðila innan flugsins s.s. Flugmálafélag Íslands (FMÍ).
Byggt á samantekt Þórjóns P. Péturssonar